Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Þeir greiddu í píku
Ég læðist oft upp á háaloft
til að líta í gömul blöð
Þegar sit ég einn koma minningar
og atburðarrás verður hröð
Allir strákarnir voru í támjóum skóm
og stelpur með túberað hár.
Á sunnudögum var rekstrarsjón,
en síðan eru liðin mörg ár.
Þeir greiddu í píku
Þeir greiddu í píku
Komdu með uppá loft
þú færð séð margt sem gerðist þá.
Ef ég mér tímavél ætti
þá gaman mér þætti að hverfa
aftur um ein tólf þrettán ár.
Þá fannst mér tíðin góð,
en brátt við verðum ellimóð.
Það var kannski ekkert smart
Þó var ansi margt
sem var skemmtilegt í dentíð
Þegar Glaumbær stóð
var hver helgi góð,
allt á fullu ár og síð.
Þá var hljómsveit í hverjum skóla.
Þá voru sömu vonir og þrár
Þá var rúnturinn meldingarpunkturinn
en síðan eru liðin mörg ár.
Þeir greiddu í .....
