Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Þeir sögðu það um Sókrates

Þeir sögðu það um Sókrates
hann svæfi jafnan einn,
því sumir hafa sexappíl
og sumir ekki neinn.

En seint við fáum svar við því
hvað sexappíllinn er,
því hvað er hver og hver er hvað,
og hvað er ekki hver?

Þótt ýmsir vilji segja sex
það samt ei breytir því
að okkar sex er óþekkt x
og allabaddarí!

Ó, lífsins mikla laumuspil!
Ó, litla fíkjublað!
Já, hver er hvað og hvað er hver,
og hver er ekki hvað?

Þýð: Jónas Árnason