Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Kannastu við hvað
Kannastu við koss?
Ó já, ó já.
Hann smellur vörum á.
Nema hvað, nema hvað.
En kannastu við koss sem ekki smellur?
Neei, enginn koss er til sem ekki smellur.
Jú margir hann í morgunkaffið velja.
Þú meinar negrakoss sem bakararnir selja!
Kannastu við kamb?
Ó já, ó já.
Það eru tennur kambi í
Nema hvað, nema hvað.
En kannastu við kamb með engar tennur?
Neei, enginn kambur hefur engar tennur.
Jú margir hann í morgunkaffið velja.
Þú meinar kamb sem bakararnir selja!
Kannastu við hring?
Ó já, ó já.
Hann er á fingri manns.
Nema hvað, nema hvað.
En kannastu við hring á engum fingi?
Neei, enginn hringur er á engum fingri.
Jú margir hann í morgunkaffið velja.
Þú meinar kleinuhring sem bakararnir selja!
Kannastu við horn?
Ó já, ó já.
Í hornið blásið er.
Nema hvað, nema hvað.
En kannastu við horn sem enginn blæs í?
Neei, ekkert horn er til sem enginn blæs í.
Jú margir hann í morgunkaffið velja.
Þú meinar horn sem bakararnir selja!
Óskar Ingimarsson
