Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Mikið var gaman af því
Manstu, systir, bernskuna blíðu,
bæinn gamla, hlíðina fríðu.
Mastu kvöldin, kyrrlát og fögur,
kvæðin hennar ömmu og sögur.
Þá var hoppað, hlegið og dansað
heldur betur, aldrei var stansað
meðan entist máttur í fótum,
mikið var gaman af því.
Bernskuárin bestu liðu,
börnin urðu stór.
Æskustörfin okkar liðu.
Allt að vonum fór.
Þó er ennþá, einkum á kvöldin,
eins og bernskan taki sér völdin.
Þá er aftur hoppað og hlegið,
hamingjan birtist á ný.
Steingrímur M. Sigfússon
