Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Mín eina von
Ég finn, ég sé að líf mitt er
á ótal vegu bundið þér
Ég féll, ég brást og verð að þjást.
en eina vonin er sú heita ást
sem ég hef, í brjósti ber,
björt og hrein hún von mín er.
Hjá þér ég finn þann frið
sem fallinn getur reist mig við.
Mér varð á og mistókst margt
þó mig megi dæma hart,
ég fell að fótum þér.
Ó, bara að þú gætir fyrirgefið mér.
Ó, gef mér grið, svo getum við
grætt sárin, þess ég heitt nú bið.
Það er svo margt sem okkur snart,
og aftur gefur ljómann, skært og bjart
Engin hreyft hér fortíð fær,
framtíð stendur okkur nær.
Hjá þér ég finn þann frið
sem fallinn getur reist mig við.
Mér varð á og mistókst margt
þó mig megi dæma hart,
ég fell að fótum þér.
Ó, bara að þú gætir fyrirgefið mér.
Ég féll og þér ég brást,
en þrái þína ást.
Hjá þér ég finn þann frið
sem fallinn getur reist mig við.
Mér varð á og mistókst margt
þó mig megi dæma hart,
ég fell að fótum þér.
Ó, bara að þú gætir fyrirgefið mér.
