Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Þórður sjóari
Og
þannig leið ævin hans Þórðar
við þrældóm og vosbúð og sukk.
Svo kvaddi hann lífið eitt kvöldið,
þeir kenndu það of miklum drukk.
Og enn þegar sjóhetjur setjast
að sumbli, og liðkast um mál,
þá tæma þeir ölkollu honum ti heiðurs
og hrópa í fögnuði: Skál!
Því þá var hann vanur að segja.........
Kristján frá Djúpalæk
