Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Stolin stef
Stolin stef
Er
hylur snjórinn hvíti sálar glugg
og séffinn neitar hverri bón
og eðla vín er súrt sem bragðvont brugg
og basl með heyrn og sjón.
Og út
úr takti bundnum tregaslög
sem trommar hjartað sárt og reitt.
Og skrámuð öndin orðin ráðvillt, rög
og rís ei framar neitt.
Hljómar
gamalt lúið lag
og læðist inn á gafl.
Og sálar brátt um bjartan dag
bráðna klaki og skafl.
Það
eitt ég vinur get þér sagt með sann
er situr einn með þrútið nef.
Sá lifir af sem rámri röddu kann
að raula stolin stef.
Tómas R. Einarsson
