Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Þú átt minn lofsöng
Þú átt minn lofsöng lifandi faðir,
lofar þig allt þitt sköpunarverk.
Þín er öll viskan, valdið og dýrðin,
voldug þín náð og elska þín sterk.
Þú átt minn lofsöng, ljúfasti Jesús,
lausnari heimsins drag mig þér nær.
Þú ert hinn sanni, þér vil ég alfús
þjóna og fylgja, frelsari kær.
Hjarta mitt lífga, Heilagur andi,
hríf mína sál svo finni ég frið.
Fylltu mig kærleik, friðarins bandi,
fái ég varðveist náð þína við.
Hjálmar Guðnason
