Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Þú helgur andi

Nú er ljúf og gjöful gleðistund,

hér er Guð að leita okkar, mín og þín.

Og við göngum glöð á þennan fund,

hér er Guð að kalla okkur, börnin sín.

Þú helgur andi, þú heilög náð,

hér fæ ég öll þau svör er ég hafði þráð.

Blessuð sé vonin er bar mig á þinn fund.

Við verðum öll sem ný fyrir anda þinn

er endar heilög stund.