Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Vorvindar glaðir

Vorvindar glaðir

Vorvindar glaðir glettnir og hraðir
geysast um löndin, rétt eins og börn.
Lækirnir skoppa, hjala og hoppa,
hvíld er þeim nóg í sæ eða tjörn.
Hjartað mitt litla hlustaðu á
hóar nú smalinn brúninni frá.
Fossbúinn kveður, kætir og gleður.
Frjálst er í fjalladal.

Þýð: Helgi Valtýsson

Hátt upp til hlíða
helst vil ég líða,
ljósálfa stíga ljúflingadans,
finna þar friðinn
fossa við niðinn,
drottningu faðma draumanna lands.
Svanirnir kvaka kvæðin sín blíð.
Kvöldblærinn strýkur vangann á hlíð.
Þar vil ég vera,
vaka og gera
söng um þig sumarnótt.

Einar E. Sæmundssen