Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

Fundust: 59 textar

Við erum söngvasveinar

:,: Við erum söngvasveinar á leiðinni’ út í lönd :,: leikum á flautu, á skógarhorn, á skógarhorn, leikum á flautu, fiðlu’ og…

Við fjallavötnin

Við fjallavötnin fagurblá er friður, tign og ró; í flötinn mæna fjöllin há með fannir, klappir, skóg. Þar líða álftir langt í…

Við gengum tvö

Við gengum tvö, við gengum tvö í rökkurró. Við leiddumst hljóð, við leiddumst hljóð um húmgan skóg. Þú varst yndi, þú varst…

Við göngum mót hækkandi sól

Við göngum mót hækkandi sól, sól, sól og sjáum hana þíða allt er kól, kól, kól, svo vætlurnar streyma og vetrinum gleyma…

Við hafið ég sat

Við hafið ég sat fram á sævarbergs stall og sá út í drungann, þar brimaldan stríða við ströndina svall og stundi svo…

Við Reykjavíkurtjörn

Við Reykjavíkurtjörn á rölti eftir dansleik ég stúlku leit, og nú ég veit að þá fór lífið á stjá. Þá sælu sumarnótt…

Við skulum ekki gráta

Við skulum ekki gráta og ekki tala ljótt, því Guð og góðu englarnir þeir vaka dag og nótt. Við skulum lesa bænirnar,…

Við skulum róa sjóinn á

Við skulum róa sjóinn á að sækja okkur ýsu. En ef hann krummi kemur þá og kallar á hana Dísu? Gömul staka

Við svala lind

Við svala lind, svo svala, bláa og djúpa þar síprus grær, hún kom til mín og kyssti varir mínar, ein kornung mær.…

Við varðeldana voru skátar

Við varðeldana voru skátar, palavú. Þeir voru og eru mestu mátar, palavú. Þeir þrá hið fríska fjallaloft og flykkjast þangað löngum oft.…

Við Vatnsmýrina

Ástfanginn blær í grænum garði svæfir grösin sem hljóðlát biðu sólarlagsins. En niðri í mýri litla lóan æfir lögin sín undir konsert…

Við viljum lifa

Allmargir ályktað hafa að ástæðulaust sé vort líf, lítt sé hér gleðinnar gjafa, og gamanlaust heiminum í. Einkennist öll þeirra ævi, af…

Villa

Bráðum fyllir vindurinn voð, Villa komdu með, Villa komdu með. Fáum við ei blásandi byr þá er best að sitja kyrr. Siglum…

Viltu mæta mér kæra

Viltu mæta mér kæra' út við ströndina í kvöld, meðan kvöldhúmið ríkir í byggð, þar sem að elskendur mæst hafa’ um ómuna…

Viltu með mér vaka í nótt

Viltu með mér vaka í nótt, vaka á meðan húmið hljótt leggst um lönd og sæ, lifnar fjör í bæ, viltu með…

Viltu vekja sönginn minn

Af veikum mætti ég um strengi strýk, en sterk er óskin mín og vonin rík, að þú komir til mín, að ég…

Víman

Tíminn látlaust áfram líður eins og lækur silfurtær. Enginn veit hvað það er sem bíður hver snýr næstur upp í loft með…

Vinarkveðja

Besti vinur bak við fjöllin háu, blærinn flytur mín kveðjuorð til þín, hvíslar í eyru ljúfu ljóði smáu, löng er biðin uns…

Vinátta

Allir þurfa’ að eiga vin, allir þurfa’ að eiga vin. Leggjum núna hönd í hönd og hnýtum okkar vinabönd. Þegar bjátar eitthvað…

Vindum vindum vefjum band

Vindum, vindum, vefjum band, vefjum fallegt húfuband. Fyrir Gunnu höfuð hneigja, fyrir Gunnu hné sín beygja. Svo skal Gunna snúa sér. Steingrímur…