Lífið og tilveran
Ýmsar vangaveltur Margrétar um lífið og tilveruna urðu henni innblástur. Hvort sem það var ást, harmur, móðureðlið, eiginkonuhlutverkið, fegurð lífsins, ástand heimsmála eða tónlistin - ekkert var of stórt eða smátt til að yrkja um það texta og lag sem voru flutt við ólík tækifæri og tilefni.

