Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Án þín

(Páll Ólafsson)

Án þín er sérhver dagur draumur
og dauðans svartnætti fyrir mig,
af því að dagsins glys og glaumur
glepur mig frá að hugsa um þig.
En þegar nóttin blessuð breiðir
blæjuna dökku yfir mig
hjartað mitt flýgur langar leiðir
lifir og unir kringum þig.

Allt sýnist mér þá leika í lyndi
nær lít ég þína fögru mynd,
þig sem ert minna augna yndi,
unaðar míns og tára lind.
Varirnar, ennið, augun kyssi
álengdar, þó að sé ég fjær.
Ó, að þín sála sæi og vissi
hvað sálu minni þú ert kær.

Páll Ólafsson