Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Án þín (Jónas Árnason)
Án þín
ég verða mundi voðalegur róni, verstur hér á Fróni. Án þín ég sökkva mundi sukk og svínaríið í. Því þú mín auðna ert og allt er kalt og bert og allt er einskisvert án þín, án þín.
Án þín
ég sé ei lengur sólarljósið bjarta
sinni
fegurð skarta.
Án þín
ég gleðst ei þó að vorið skrýði skóg og mó. Það anga engin blóm og engin stjarna skín,
og
allt er auðn og tóm
án
þín.
Með
þér ég vildi yfir Arabíu fara
eða
Sa-ha-hara.
Með
þér ég óttast mundi hvorki krókódíl né fíl.
Og ein
með börn og bú
í
bænum Timbúktú
ég una
mundi mér
með
þér, með þér.
Með
þér ég eflaust gæti unnið heiminn sjálfan,
í það
minnsta hálfan.
Með
þér ég arkað gæti yfir Norðurpól um jól.
Og
undir íshafssnjó
í
ástarsælli ró
ég una
mundi mér
með
þér.
Jónas Árnason
