Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Austurstræti (rónalagið)
Ég inn í Austurstræti snarast létt á strigaskónum,
með bros og vör og tyggigúmmi í munninum.
Ég labba um og horfi á liðið sem er þar í hópnum
frá lassarónum upp í snobbaðar kerlingar.
Austurstræti,ys og læti
fólk á hlaupum í innkaupum,
fólk að tala, fólk í dvala
og fólk sem ríkið þarf að ala.
Þar standa bankarnir í röðum
Lands-Búnaðar-Útvegs,
og fyrir utan stendur horaður almúginn
en fyrir innan sitja feitir peninganna verðir
og passa að vondi kallinn komi ekki og taki þá.
Austurstræti ys og .. o.s.frv.
