Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Búkalú
Að vera í takt við tímann er mjög tímafrekt,
til þess þarf ástundun og góða eftirtekt.
Ef fallið hefðum við þá gryfju í
væri þessi hljómsveit löngu fyrir bí.
Allt er best í hófi það er okkar trú,
og með bros á vör við leikum búkalú,
höldum okkar striki bæði hér og nú
og með bros á vör við leikum búkalú.
Sumir éta magurt aðrir éta feitt,
sumir drekka of mikið aðrir ekki neitt,
það sem Bubba Mortens þykir gott og gilt
þykir Hauki frænda vera heldur tryllt.
Allt er best í hófi það er okkar trú,
og með bros á vör við leikum búkalú.
Höldum okkar striki bæði hér og nú
og með bros á vör við leikum búkalú.
Stuðmenn
