Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Í páfans sal

Í páfans sal er sælan full
því syndalausnin veitir gull.
Hin bestu vín hann velur sér,
það væri staður handa mér!

Og þó; og þó! Sá hængur er þar á,
hann enga stúlku kyssa má,
í bólið ávallt einn hann fer,
nei, ekki er þetta handa mér!

Í soldáns höll er hýr og glöð
og harla fögur kvennaröð,
með þeim hann stundir styttir sér,
sú staða’ er einmitt handa mér!

Og þó; og þó! Hann á sér illa trú,
því allan víndrykk bannar sú,
við staup hann aldrei unir sér,
nei, ekki’ er þetta handa mér!

En ef nú betur að er gáð,
er ugglaust hægt að finna ráð.
Að vera eitt er allt of klént,
en engin neyð að vera tvennt!

Ný kyss mig stúlka, þess ég þarf,
mig þyrstir helst í soldáns starf,
og skenkið bræður, skál er tóm,
nú skal ég stunda páfadóm. SKÁL!

Jón Helgason