Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Lestin brunar

Lestin brunar burt frá þér,
bráðum ertu horfin mér,
þú varst falleg, þú varst góð
og þér orti ég flest mín ljóð.

Lestin brunar, dagur dvín,
döpur stjarna í austri skín.
Milt og hreint þitt hjarta var,
þess heita slag var lífs míns svar.

Lestin brunar, söngvaseið
sendi ég á minni leið
þér sem fyrrum áttir allt
ástarhita, ef varð mér kalt.

Björn Braga

Þér ég bið að blessist allt,
blíðmál heimsins er svo valt.
Lestin brunar burt frá þér
bráðum ertu horfin mér.