Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Lífið er lotterí
Um
frægðarmenn og kappa við fáum oft að heyra,
en fáa veit ég líka honum Siglufjarðar-Geira.
Að erfiðleikum sínum hann alltaf gaman henti,
og ef að hann í sérstöku klammaríi lenti sagði´hann:
„Lífið er lotterí Já, það er lotterí.
Já, það er lotterí. Og ég tek þátt í því.“
Í æsku
hans á böllum voru áflog fastur liður,
og allra manna fyrstur var hann jafnan sleginn niður.
En þegar hann svo stóð upp aftur eftir meðferð slíka
með augu bólkin, sprungna vör og nefið brotið líka, sagði´hann:
„Lífið er lotterí Já, það er lotterí.
Já, það er lotterí. Og ég tek þátt í því.“
Hann
ungur gerðist formaður á mótorbátnum Brandi,
og bein úr sjó hann aldrei dró, en lenti oft í strandi.
En Geira stóð á sama, hann öxlum sínum yppti,
og er hann bátnum strandaði í tuttugasta skipti, sagði´hann:
„Lífið er lotterí Já, það er lotterí.
Já, það er lotterí. Og ég tek þátt í því.“
Hann
eitt sinn fékk sér konu; af öðrum konum bar hún,
en ekki nema í meðallagi dyggðug kona var hún.
Hún elskaði hann talsvert, en aðra menn talsvert meira,
og er hún lokum skildi við manninn sinn hann Geira, sagði´hann:
„Lífið er lotterí Já, það er lotterí.
Já, það er lotterí. Og ég tek þátt í því.“
En dag
einn sýndist karlinn eitthvað lumbrulegur vera,
og læknarnir þeir tóku hann og fóru strax að skera.
Og er þeir höfðu burt úr honum skorið fleira og fleira,
svo fækkað hafði stórlega innyflum í Geira, Sagði´hann:
„Lífið er lotterí Já, það er lotterí.
Já, það er lotterí. Og ég tek þátt í því.“
Og kvöld eitt fékk hann aðkenning af alvarlegu slagi.
Og innan stundar fékk hann slag af miklu verra tagi.
Og þegar nóttin lagðist yfir haf og yfir hauður,
og heiðurskarlinn Geiri virtist loksins alveg dauður,sagði´hann:
„Lífið er lotterí Já, það er lotterí.
Já, það er lotterí. Og ég tek þátt í því.“
Jónas Árnason
