Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Ó, faðir gjör mig lítið ljós
Ó, faðir gjör mig lítið ljós
um lífsins stutta skeið,
til hjálpar hverjum hal og drós
sem hefur villst af leið.
Ó, faðir gjör mig blómstur blítt
sem brosir öllu mót
og kvíðalaust við kalt og hlýtt
er kyrrt á sinni rót.
Ó, faðir gjör mig ljúflingslag
sem lífgar hug og sál
og vekur sól og sumardag
en svæfir storm og bál.
Ó, faðir gjör mig styrkan staf
að styðja hvern sem þarf
uns allt það pund sem Guð mér gaf
ég gef sem bróður arf.
