Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Palli Hall
Um árið fóru vegagerðarverkamenn í stræk
þeir voru starfsmenn ríkisins og áttu að brúa læk.
En Palla Halla verkstjóra var ekki orðið rótt
því hann átti að fá sinn bónus ef það gengi fljótt.
Palli Hall hækkaði ekki kaupið
Palli hall sendi fólið heim
Palli hall hótaaði að reka
þá sem heimta meiri laun ern ríkið skammtar þeim.
Hann fór að vinna sjálfur til að sýna þegnskapinn
en sagaði í löppina og barði á fingurinn
Hann settist fremst á plankabút og sagaði hann svo af
þegar sögin náði í gegn fór allt á bólakaf.
Palli Hall hrapaði í ána.
Palli Hall missti gróða síns.
Palli Hall hann er orðinn engill,
því til himna fór hann beint á vegum ríkisins.
Og Sankti Pétur fagnaði og fylgdi honum inn.
Ég feginn er að sjá þig hérna elsku Palli minn
því englahörpuhljómsveitin hún hlýðir ekki baun
og þeir heimta vísitölu á yfirvinnulaun.“
Palli Hall hörpusveitarstjóri
Palli Hall stjórnar þeim af list.
Palli Hall beitir sömu brögðum
og hann beitti á vegum ríkisins í fyrri vist.
En englagreyin geta líka á illri meðferð þreyst
þeir endasendu Palla niðrí hitt ríkið, þú veist.
En þar var fyrir húsbóndi sem þurfti svona mann
sem að þiggur launin fyrir það að styðja hann.
Palli Hall orðinn yfirpúki,
Palli Hall rækir það af list.
Palli Hall hefur meiri bónus
en hann hlaut á vegum ríkisins í fyrri vist.
Ásgeir Ingvarsson
