Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Sofðu blessað barnið mitt
Sofðu blessað barnið mitt,
byrgðu aftur augun þín.
Hér við rauna rúmið þitt
rekja vil ég kvæðin mín.
Hjartað engan finnur frið,
feigðarlega berst það ótt,
nema þína vöggu við
vaka megi dag og nótt.
Ei með heimsins glans né glaum
glepja skal ég fyrir þér.
Þig skal betri dreyma draum,
dreyma um það sem liðið er.
Dreyma um liðin æviár,
þá okkar sól í heiði skein,
þá augun þekktu engin tár
eða hjartað nokkurt mein.
Dreymi þig hin björtu blóm
brosa geislum sólar við
og söngfuglana, er sætum róm
sungu hver við annars hlið.
Ég skal rifja upp stað og stund,
stöku hverja og orðin, þá
saman við í lágum lund
lækjarbunu sátum hjá.
Dreymdu liðin æviár,
þá okkar sól í heiði skein,
þá augun þekktu engin tár
eða hjartað nokkurt mein.
