Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Kveðja
Úti er þetta ævintýr.
Yfir skuggum kvöldið býr.
Vorsins glóð á dagsnins vöngum dvín.
Þögnin verður þung og löng
þeim sem unnu glöðum söng
og trúað hafa sumarlangt á sól og vín.
Ó, hve heitt ég unni þér.
Allt hið besta í hjarta mér
vaktir þú og vermdir þinni ást.
Æskubjart um öll mín spor
aftur glóði sól og vor
og traust þitt var það athvarf sem mér aldrei brást.
Óska ég þess að angur mitt
aldrei snerti hjarta þitt.
Til þess ertu alltof ljúf og góð.
En ég vil þú vitir það,
vina mín, þó hausti að,
að þú varst mín sumarþrá, mitt sólskinsljóð.
Því er gott þú gleymir mér.
Gæfan mín svo brothætt er
og vonir mínar hrekjast stað úr stað.
En ef ég skyldi áttum ná
einhverntíma, ég veit þá
að minning þinni ætti ég að þakka það.
Eitt ég hræðist, ef svo fer,
að ég kunni að gleyma þér,
þér sem gafst mér lífsins týndu trú.
Allt hið besta er á ég geymt,
allt sem mig hefur ljúfast dreymt,
það er gleymt og týnt um leið því það varst þú.
Tómas Guðmundsson
